Kreativ Dental Ísland

Útbaigazítási információk Weboldal A fogorvosi rendelő elérése

Kreativ Dental Ísland Kreativ Dental í Búdapest býður hágæða tannviðgerðir á 50 til 70 prósent lægra verði en á Íslandi.

Kreativ Dental í Búdapest býður hágæða tannviðgerðir á 50 til 70 prósent lægra verði en þekkist á Íslandi.

Í meira en 20 ár hefur Kreativ Dental þjónustað hundruði ánægðra viðskiptavina frá Skandinavíu og Norður-Evrópu ár hvert og hlotið virtar alþjóðlegar viðurkenningar. Við sérhæfum okkur í tannplöntum, postulínskrónum, brúm, kinnholulyftingum, tannholdsaðgerðum og tölvusneiðmyndum af tönnum

Fegrunartannlækningar eru annað sérsvið okkar. Postulínskrónurnar sem við notum eru allar smíðaðar á hágæða innanhúsverkstæði okkar sem búið er nýjustu tækni frá Þýskalandi og Japan.

16/10/2026

Við mótum bros og þið kallið fram bros hjá okkur :) Takk fyrir allt og áfram veginn! — Sjáumst sem fyrst í Búdapest!

Það er hópur að koma þann 22. Þessa mánaðar til að láta tékka á tannheilsunni, gera jólainnkaup og auðvitað bregða sér í...
13/10/2026

Það er hópur að koma þann 22. Þessa mánaðar til að láta tékka á tannheilsunni, gera jólainnkaup og auðvitað bregða sér í bátsferð með Kristínu í NoName. Síðustu forvöð að að hafa samband fyrir þá sem vilja demba sér með, svo endilega sendið okkur skilaboð hér á Facebook með símanúmeri ef þið viljið heyra í okkur með þetta ... og ekki spillir að flugið kostar minna en skrepp í leigubíl 🙂

fans

07/10/2026

Við leggjum okkur alltaf fram um að dvölin í Búdapest sé eins ánægjuleg og hægt er og hjálpum þér að nýta tímann vel. En það sem mestu máli skiptir er auðvitað meðferðin sjálf. Þess vegna skiptir máli að vita hverjir tannlæknar og sérfræðingar eru, og hvernig þeir eru skráðir með viðurkennda sérhæfingu. Opinber skráning ungverskra heilbrigðisyfirvalda, OKFŐ, heldur úti síðu þar sem hægt er að staðfesta skráningu og sérhæfingu. Það ætti alltaf að vera númer eitt þegar kemur að vali á stofu!

fans

24/09/2026

Kreativ Dental og Semmelweis-háskóli hafa undanfarin ár unnið að því að þróa nýjar aðferðir og lausnir sem stefna að því að gera tannlækningar nákvæmari, sársaukaminni og allan bata hraðari, með áherslu á að gera munnhols-skurðaðgerðir inngripsminni.Við erum stolt af því að vera í þessu samstarfi þar sem yfir-tannlæknir Kreativ Dental hann Loui okkar (Dr. Lajos Patonay) læknir, munnholsskurðlæknir og tannplantasérfræðingur gegnir stóru hlutverki.Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu, og hljóðar styrkurinn upp á vel yfir hálfan milljarð í íslenskum krónum. Kreativ Dental er þannig ekki einungis fremst meðal jafningja í tannviðgerðum í Evrópu heldur einnig í raun þekkingarfyrirtæki á sviði tannlækninga sem leggur sitt að mörkum til að þróa greinina. Þetta er eitt af mörgum atriðum sem tryggja þér þjónustu án hliðstæðu.

Þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Olafsson eru eru víðsigld og fótviss hvar sem er á hnettinum, það gladdi okkur að ver...
11/09/2026

Þau Tinna Gunnlaugsdóttir og Egill Olafsson eru eru víðsigld og fótviss hvar sem er á hnettinum, það gladdi okkur að verða fyrir valinu hjá þeim á sínum tíma og gaman að sjá þau hvert sinn sem þau koma við :) — Nú fer í hönd uppáhalds tími okkar, haustið sem er töfrandi fram að jólum með hita sem jafnast á við íslenskt sumar og tími haustútsalanna. Ekki hika við að heyra í okkur ef þú ert að huga að tannheilsunni og vilt nýta ferðina til hins ýtrasta!

Og kæru vinir, endilega deila, við viljum kynnast ykkar vinum :)

27/08/2026

Þú getur treyst frumkvöðlinum!
28 ár í rekstri og þar af 10 ár með íslenskumælandi starfsfólk á staðnum.
ISO vottuð þjónusta, tannlæknar sem Googlast vel og fullbúið tannsmíðaverkstæði innanhúss í húsi sem er sérhannað fyrir starfsemina.

Þið sem þekkið okkur og vitið að það þarf að vanda valið, endilega deilið :)

19/08/2026

Ritstjórinn Jón Kristján Sigurðsson hafði þetta að segja um hvernig hann fann okkur og hvað skiptir hann máli:

Þegar ég vissi að það yrði ekki lengur um flúið að fara í alvöru tannviðgerð, lagðist ég í rannsóknarvinnu. Hrökk af vana í blaðamannsgírinn og kannaði alla kosti og galla, sú rannsókn varð til þess að ég valdi Kreativ Dental.

Það sem vó þyngst var reynslan og þekkingin innan tannlæknateymisins. Þar stendur yfirtannlæknir Kreativ Dental, Loui (Dr.Lajos Patonay) sérstaklega upp úr. Hann er bæði skurðlæknir og kjálkaskurðlæknir, þekktur um heim allan og kenndi við Semmelweis-háskólann við góðan orðstír. Hann hefur jafnframt tekið þátt í samstarfi á vegum Evrópusambandsins við þróun framtíðartækni í tannlækningum.

Annað sem skipti mig miklu máli var öryggið sem fylgir langri sögu og að þjónusta á íslensku hafi verið í boði á stofunni síðastliðin 10 ár. Það er auðvelt að tala um ábyrgð, en hvað verður um hana ef tannlæknastofa starfar í þrjú eða fimm ár og hverfur svo? Kreativ Dental er að renna inn í sitt 29. starfsár. Fyrir mér vegur það þungt. Sama á við um orðsporið og þá staðreynd að hægt er að sannreyna upplýsingar um tannlæknana sjálfa, meðal annars með því að fletta upp skráningarnúmerum þeirra, en Kreativ gefur upp fimm stafa númer sem allir tannlæknar í Ungverjalandi hafa.

Minn eini tannlæknaótti er að lenda á einhverjum sem er með takmarkaða reynslu og þekkingu. Þegar maður veit að maður er í góðum höndum hverfa allar áhyggjur og maður nýtur tímans í einni fegurstu borg heims.

Svo skiptir utanumhaldið miklu. Það er haldið utan um mann frá A til Ö, allt frá komu á flugvöll og áfram, þannig að maður þarf ekki að vera með áhyggjur af smáatriðunum. Mér finnst mikill munur á því að koma til Búdapest og ganga beint að afgreiðslu borði í komusal hjá tannlæknastofu sem tekur á móti fólki alls staðar að úr heiminum, með skipulagða þjónustu og áratuga sögu, eða að treysta á einhverja sem standa í komusalnum og veifa skiltum.

Þá verður ferðin líka meira en bara tannlæknisheimsókn. Arena-hótelið er orðið enn betra eftir að hafa verið tekið í gegn og staðsetningin er frábær. Neðanjarðarlestin er rétt handan við hornið og eftir fjögur stopp er maður kominn á aðaltorgið þar sem veitingastaðir, verslanir og borgarlífið taka við.

Haustið er svo sérstaklega góður tími til að skreppa til Búdapest. Maður getur framlengt íslenska sumarið, fengið smá sól og notið borgarinnar — og jafnvel klárað jólainnkaupin í leiðinni á hagstæðan hátt.

13/08/2026

Munurinn er augljós!..en mörg ykkar vita það nú þegar :)

Eftir mikla umræðu undanfarið um gildi menntunar og reynslu hefur verið álag á símanum sem náði einhvers konar hámarki s...
06/08/2026

Eftir mikla umræðu undanfarið um gildi menntunar og reynslu hefur verið álag á símanum sem náði einhvers konar hámarki strax upp úr 8 að íslenskum tíma í morgun, þegar fólk fór að fletta Mogganum með morgunkaffinu. Við tökum undir orð góðs vinar til margra ára að stærsti sparnaðurinn felst í því að velja rétt í byrjun! — Ef ekki næst að svara símanum strax þá verður hringt í þig til baka við fyrsta tækifæri og svo getur þú alltaf sent okkur línu hér á Facebook 🙂 — Það stefnir í fjöruga framlengingu á sumrinu hjá mörgum sem hyggjast gera hagstæð jólainnkaup og fríska brosið á stofunni sem er fyrsta val fólks frá yfir 50 löndum.

fans Endilega deilið og sjáumst svo sem fyrst, gamlir, nýir og vlntanlegir vinir!

Cím

Vezér Utca 100
Budapest
1141

Nyitvatartási idő

Hétfő 10:00 - 17:00
Kedd 10:00 - 17:00
Szerda 10:00 - 17:00
Csütörtök 10:00 - 17:00
Péntek 10:00 - 17:00

Értesítések

Ha szeretnél elsőként tudomást szerezni Kreativ Dental Ísland új bejegyzéseiről és akcióiról, kérjük, engedélyezd, hogy e-mailen keresztül értesítsünk. E-mail címed máshol nem kerül felhasználásra, valamint bármikor leiratkozhatsz levelezési listánkról.

A Fogorvosi Rendelő Elérése

Üzenet küldése Kreativ Dental Ísland számára:

Parancsikonok

Megosztás

Kategória