13/07/2026
Björn Kristjánsson hefur verið í umfangsmiklum tannviðgerðum hjá Helvetic Clinics þetta og síðasta ár. Hann sendi okkur þessa umsögn í dag.
Bestu þakkir Björn,
fyrir hönd Helvetic og HEI,
Guðjón Sigurbjartsson
-----
Þvílíkur klassi!
Helvetic clinics í Budapest stendur svo sannarlega undir nafni sem hágæða tannlæknaþjónusta og ein af þeim bestu í Evrópu. Stofan er stór og búin háþróuðum tækjum. Fagmennskan er í fyrirrúmi. Starfsfólkið er frábært, öflugt teymi sem vinnur þétt saman. Ég þurfti að láta setja fylliefni til að byggja upp beinin, setja implönt og heilgóm á implönt. Unnið er með bestu efnin sem fáanleg eru. Útkoman er 100% og ég gæti ekki verið ánægðari.
Mjög góð þjónusta er frá tengilið heima á Íslandi, Guðjóni Sigurbjartssyni sem leiðbeindi og aðstoðaði ásamt því að halda utan um hópa. Fylgja þeim til Budapest og aðstoða á svæðinu.
Hótelið sem ég gisti á er samtengt tannlæknastofunni sem er gífurlega þæginlegt. Mjög gott hótel, góð herbergi, góður morgunmatur og gott starfsfólk.
Takk fyrir mig Helvetic clinics, Guðjón Sigurbjartsson og 12 Revay hotel
Kveðja
Björn Kristjánsson