Potokowa - Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga

Potokowa - Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga Hér bjóðum við uppá tannlæknaþjónustu í Gdansk í Póllandi. Verið öll velkomin! Miladent er staðsett á 3 stöðum í Gdansk. Við erum að bíða eftir þér

Hjá Miladent starfa eingöngu reyndir tannlæknar sem munu sjá til þess að þú fáir Hollywood brosið þitt! Miladent hefur verið starfandi frá 2002 og er vel þekkt og virt innan tannlækna geirans. Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá fólki út um allan heim þar sem við höfum framkvæmt þúsundir heppnaðra aðgerða. Ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum netfangið
[email protected]
eða í ein

kaskilaboðum

Njóttu þess að skarta fallega brosinu þínu og á sama tíma getur þú nýtt ferðina í að skoða hina frábæru borg Gdansk.

Kíktu til okkar :D Ef þú hefur spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur gegnum messenger eða sendu okkur tölvu...
24/09/2025

Kíktu til okkar :D
Ef þú hefur spurningar ekki hika við að hafa samband við okkur gegnum messenger eða sendu okkur tölvupóst: [email protected]

03/06/2025

Það er sumar í Gdańsk og því tilvalið að skella sér út ☀️ Njóta borgarinnar og kíkja í heimsókn til okkar til að fá heilbrigðara og fallegra bros 😃

Í tilefni áramótanna viljum við óska öllum sjúklingum okkar frá Íslandi góðrar heilsu, margra gleðilegra stunda og að dr...
31/12/2024

Í tilefni áramótanna viljum við óska öllum sjúklingum okkar frá Íslandi góðrar heilsu, margra gleðilegra stunda og að draumar ykkar rætist. Megi hver dagur á árinu 2025 vera árangursríkur, fullur af brosi og jákvæðri orku! 🎆

Við þökkum traustið sem þið hafið sýnt okkur og gleðjumst yfir því að geta fylgt ykkur á leiðinni að fallegu og heilbrigðu brosi. Við óskum ykkur að nýtt ár færi ykkur enn fleiri ástæður til að gleðjast yfir, ógleymanlegar minningar og fleiri ár við góða heilsu! 🤗

Með bestu kveðjum,
Starfsfólk Potokowa.

Takk fyrir að vera með okkur! 🦷Ef þið viljið deila einhverri upplifun eða uppástungum þá hvetjum við til að skilja eftir...
27/12/2024

Takk fyrir að vera með okkur! 🦷

Ef þið viljið deila einhverri upplifun eða uppástungum þá hvetjum við til að skilja eftir umsögn – það er ykkur að þakka að við getum verið í stöðugri þróun.

📍 Potokowa – Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga
📌 Gdańsk, Potokowa 13a
📧 [email protected]
📞 +48 58 506 52 50

Í tilefni jóla og áramóta viljum við færa ykkur, kæru viðskiptavinir, hjartanlegar óskir um góða heilsu, gleði og frið. ...
23/12/2024

Í tilefni jóla og áramóta viljum við færa ykkur, kæru viðskiptavinir, hjartanlegar óskir um góða heilsu, gleði og frið. 🎄

Megi jólin vera hlý og í faðmi ástvina.

Með kveðju,
Starfsfólk POTOKOWA

Langar þig að laga brosið en ert að velta fyrir þér hvort þú eigir að velja skeljar eða krónur? Við skiljum það vel að þ...
19/12/2024

Langar þig að laga brosið en ert að velta fyrir þér hvort þú eigir að velja skeljar eða krónur? Við skiljum það vel að þetta er stór ákvörðun. 😊

Við framkvæmum báðar þessar aðgerðir og allt ferlið gengur hratt og greiðlega fyrir sig – við erum með eigin tannsmíðastofu á staðnum! Á þann hátt getum við gert allar lagfæringar um leið án þess að bíða eftir tannsmiðunum.

🦷 Skeljar – þunn álegg á fremri hluta tannanna sem eru fullkomin til að bæta lit, lögun og litla vankanta. Þær krefjast þess einungis að tennurnar séu eilítið slípaðar og gera kleift að viðhalda náttúrulegu tönninni.

🦷 Krónur – þær umlykja alla tönnina og eru fullkomnar til að endurbyggja mikið skemmdar tennur eða eftir rótfyllingu. Þær veita fullkominn stuðning og góða endingu.

Fyrir erlenda viðskiptavini tekur allt ferlið, allt frá ráðgjöf að endanlegu brosi aðeins 5 virka daga!

Viltu fá að vita meira? Skrifaðu okkur á íslensku. Við munum með glöðu geði svara öllum spurningum hvernig hægt sé að bæta brosið :)

📍 Potokowa – Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga
📌 Gdańsk, Potokowa 13a
📧 [email protected]
📞 +48 58 506 52 50

Ímyndaðu þér: þú stendur fyrir framan spegilinn og lætur þig dreyma um fullkomið bros. Þú leiðir hugann að beinu tönnunu...
16/12/2024

Ímyndaðu þér: þú stendur fyrir framan spegilinn og lætur þig dreyma um fullkomið bros. Þú leiðir hugann að beinu tönnunum og sjálfstraustinu sem þú finnur fyrir í hvert skipti sem þú brosir.

En hvað skal velja?

Hefðbundna teina sem gefa varanlega útkomu en geta verið sýnilegir eða nútímalegar, nær ósýnilegar skinnur sem rétta tennurnar án þess að mikið fari fyrir þeim. Við hjálpum þér að velja:

🦷 Teinar – ef þú átt í stærra vandamáli tengdu biti er þetta án efa besti kosturinn! Þeir krefjast skoðana á 2 mánaða fresti en munu virkilega ráða við erfiðustu tilfellin.
🦷 Skinnur – þægilegri ef þú getur ekki mætt reglulega í skoðun! Það nægir að koma í tíma fyrst og svo í endann á meðferð með skinnum og restin af meðferðinni er ofur sveigjanleg og þægileg.

Viltu fá að vita meira? Sendu okkur línu – við erum með útnefndan starfsmann sem kann íslensku og mun svara öllum fyrirspurnum þínum!

Hlökkum til að heyra í þér.

📍 Potokowa – Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga
📌 Gdańsk, Potokowa 13a
📧 [email protected]
📞 +48 58 506 52 50

Stress fyrir tímann? Hvað segirðu um göngutúr um fallegu strendurnar í Gdańsk?Við vitum það vel að það getur verið stres...
11/12/2024

Stress fyrir tímann? Hvað segirðu um göngutúr um fallegu strendurnar í Gdańsk?

Við vitum það vel að það getur verið stressandi að fara til tannlæknis en við erum með leiðir til að þú verðir afslappaðri og hafir minni áhyggjur! Í fyrsta lagi er vert að muna að þú ert ekki ein/n um þetta – flestir eru aðeins órólegir fyrir tímann og starfsfólkið okkar skilur það fullkomlega og er alltaf umhugað um að sjúklingunum líði vel.

Prófaðu að gera eitthvað huggulegt áður en þú mætir: taktu frá tíma til að slappa af – hlustaðu á uppáhalds tónlistina þína, fáðu þér gott kaffi. Hvað segirðu um að fara í göngutúr um fallegu strendurnar í Gdańsk? Þetta er fullkominn staður til að slaka á, róa taugarnar og safna kröftum fyrir tímann.

Mundu að tannlækningar í dag eru mun þægilegri en áður… og ef þér er virkilega órótt þá segðu okkur frá því – við getum boðið upp á ýmsar lausnir til að draga úr stressi.

Heilsan þín skiptir okkur höfuðmáli og tími hjá tannlækni getur verið afslappaður og laus við óvæntar uppákomur. Verið velkomin á Potokowa – við munum sjá um brosið þitt frá a til ö!

📍 Potokowa – Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga
📌 Gdańsk, Potokowa 13a
📧 [email protected]
📞 +48 58 506 52 50

Á Potokowa er okkur annt um tannheilsu þína! Það skiptir okkur máli að brosið þitt verði ekki aðeins fallegra heldur fyr...
02/12/2024

Á Potokowa er okkur annt um tannheilsu þína! Það skiptir okkur máli að brosið þitt verði ekki aðeins fallegra heldur fyrst og fremst HEILBRIGÐARA.

Þjónustan sem við bjóðum upp á nær yfir breitt svið almennra tannlækninga, allt frá meðferð tannskemmda yfir í fallegar fyllingar – allt á þægilegan og sársaukalausan hátt.

🦷 Lækning tannskemmda,
🦷 plastfyllingar,
🦷 skorufyllingar og flúorlökkun tanna,
🦷 forvarnir.

Fáðu heilbrigt bros í nútímalegu og huggulegu andrúmslofti!
Hafðu samband – við bíðum eftir þér í Gdańsk: borg þar sem menning og fallegt útsýni veita þér innblástur.

📍 Potokowa – Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga
📌 Gdańsk, Potokowa 13a
📧 [email protected]
📞 +48 58 506 52 50

Veturinn í Gdańsk bíður upp á einstaka afþreyingu og er á sama tíma frábær árstíð til að huga að tannheilsunni. Á Potoko...
28/11/2024

Veturinn í Gdańsk bíður upp á einstaka afþreyingu og er á sama tíma frábær árstíð til að huga að tannheilsunni.

Á Potokowa getur þú nýtt þér faglega tannlæknameðferð og blandað því saman við töfrandi jólamarkaðinn, skautaferð og marga aðra spennandi möguleika. Á göngu um götur gömlu borgarinnar getur þú dást að hrífandi steinhúsum, skoðað gamla kranann Żuraw við Motława ánna eða hina þekktu Mariacki kirkju – stærsta musteri úr múrsteinum í heimi!

Þú getur flogið beint frá Keflavík til Gdańsk og við hjálpum þér að plana alla ferðina.
Njóttu nýja brossins og töfrandi jólastemningarinnar í Póllandi.

📍 Potokowa – Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga
📌 Gdańsk, Potokowa 13a
📧 [email protected]
📞 +48 58 506 52 50

Adres

Gdansk

Godziny Otwarcia

Poniedziałek 08:00 - 20:00
Wtorek 08:00 - 20:00
Środa 08:00 - 20:00
Czwartek 08:00 - 20:00
Piątek 08:00 - 20:00
Sobota 08:00 - 20:00

Telefon

+48585065250

Strona Internetowa

Ostrzeżenia

Bądź na bieżąco i daj nam wysłać e-mail, gdy Potokowa - Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga umieści wiadomości i promocje. Twój adres e-mail nie zostanie wykorzystany do żadnego innego celu i możesz zrezygnować z subskrypcji w dowolnym momencie.

Skontaktuj Się Z Ten Gabinet Dentystyczny

Wyślij wiadomość do Potokowa - Miðstöð tannplanta og andlitsskurðlækninga:

Udostępnij